13.05.2012 10:27

1. maí

Jói skrapp í Dalina fyrsta maí til að prufukeyra nokkur hross á fyrsta útimóti ársins. Það er skemmst frá að segja að hann kom heim með þrjá verðlaunapeninga. Til nánari greiningar á þeim þá varð hann:

 í fyrsta sæti í fimmgangi á Frabín frá Fornusöndum,


í fyrsta sæti í 100 m skeiði á Hvirfli frá Bessastöðum á tímanum 8,4 sek.


í fjórða sæti í 100 m skeiði á Vinsæl frá Halakoti


í þriðja sæti í tölti á Oddvita frá Bessastöðum og líka í 6 sæti í fjórgangi á honum.

Öll úrslit frá mótinu má sjá hér á heimasíðu Glaðs.

Eins og sjá má á myndunum þá fór myndasmiður búsins ekki með, enda var hann við myndasmíði á Æskulýðssýningu Þyts á sama tíma. Einnig var unglingurinn á heimilinu að sýna þar, þannig að hún fór ekki með pabba sínum að keppa.


10.05.2012 22:25

Vorúttekt á 5 og 6 vetra hrossum


Sjóður frá Bessastöðum, 5 vetra graðhestur undan Millu frá Árgerði og Vilmundi frá Feti.

Fréttaritari síðunnar var að klippa skjólbelti við tún sem á að plægja á næstu dögum og fylgdist í leiðinni með Jóa þjálfa 5 og 6 vetra hrossin. Í myndaalbúminu má sjá afrakstur þess. Þar eru myndir af Unun, Heru, Logadís, Glæðu og Sjóði. Stefnt er með þau öll í kynbótadóm í lok mánaðarins.

06.05.2012 11:51

Vorúttekt á 4. vetra hryssunum



Nú er sá tími sem við þurfum að ákveða hvort fjögurra vetra hryssurnar séu orðnar nógu mikið tamdar til að fara í dóm í vor. Við höfum undanfarna daga verið að mynda þær og meta. Í myndaalbúminu hér á bakvið getið þið séð útkomuna, eða með því að smella á myndina hér að ofan af Mynd frá Bessastöðum. Hér á bakvið getið þið séð nánari upplýsingar um hryssurnar,

21.04.2012 10:07

Fermingarhelgin með meiru


Við erum rétt að ná okkur eftir at síðustu helgar. Fyrir það fyrsta þá var Magnús Björn fermdur í Melstaðarkirkju þann dag. Mjög fallegur og skemmtilegur dagur í alla staði.


Á laugardeginum var síðasta mót liðakeppninnar á Hvammstanga og var það töltmót. Helga var eini þátttakandinn frá okkur þar sem foreldrarnir voru mjög uppteknir við önnur störf. Hún var með Oddvita frá Bessastöðum, þau komust í B-úrslit, unnu þau og gerðu sér svo lítið fyrir og unnu A-úrslitin líka. Glæsilegur árangur hjá þessu unga pari. Úrslit mótsins má sjá á heimasíðu Þyts.


Ástæða þess að Jói var ekki með á töltmótinu á Hvammstanga var sú að hann var að taka þátt í sýningunni Fákar og fjör á Akureyri. Þar var hann með Hvirfil á góðum gír í skeiði og Unun frá Vatnshömrum í afkvæmahópi Arons frá Strandarhöfði. Þau stóðu sig ljómandi vel. Hér fyrir neðan er mynd af Unun á fljúgandi skeiði í gegnum höllina á Akureyri.

01.04.2012 22:18

Stórsýning Þyts



Föstudaginn 30. mars var Stórsýning Þyts í Þytsheimum á Hvammstanga. Þar komu fram ýmsir knapar og mörg hross héðan af svæðinu. Við fórum með fulla hestakerru á sýninguna. Í Bessastaða-atriðinu vorum við með 3 ungar hryssur í okkar eigu og ræktun. Það voru hryssurnar:


Glæða frá Bessastöðum, sem Jói var á. Hún er á fimmta vetur, undan Glóð frá Jórvík 2 og Vilmundi frá Feti.


Hera frá Bessastöðum, sem Guðný var á. Hún er á sjötta vetur, undan Önn frá Grafarkoti og Gígjari frá Auðsholtshjáleigu.


Unun frá Vatnshömrum, sem Helga Rún var á. Hún er á sjötta vetur undan Iðu frá Vatnshömrum og Aroni frá Strandarhöfði.



Þessar fínu myndir af atriðinu okkar tók snillingurinn Lillý á Barkarstöðum og fengum við þær á heimasíðu Þyts.


Helga Rún var svo með Prins frá Hesti, sem við eigum, í Knapamerkjaatriði. Þar sýndu krakkar úr Þyti í Knapamerki 1 og 2 hvað þau hafa verið að læra. Þrælflott útfært atriði hjá kennaranum þeirra Fanney Dögg.


Fimmta hrossið sem við fórum með var Hvirfill frá Bessastöðum, sem Jói var með í skeiðatriði.

Fullt af myndum sem við Lillý tókum eru á heimasíðu Þyts, endilega kíkið á þær

22.03.2012 22:38

Vilmundarsystkinin

Af og til tökum við myndband af hrossunum sem eru í þjálfun svo að aðalþjálfarinn sjái aðeins hvaða árangri hans vinna er að skila sér. Í dag voru mynduð systkinin Sjóður og Glæða frá Bessastöðum, bæði undan Vilmundi frá Feti.


Sjóður er 5 vetra graðhestur undan Millu frá Árgerði.


Glæða er 5 vetra undan Glóð frá Jórvík 2.

15.03.2012 14:35

Frostrósarbörnin standa sig

Frostrós frá Þóreyjarnúpi kom hingað í þjálfun vorið 2004 og fékk 7,93 í hæfileika einkunn á kynbótasýningu stuttu seinna. Síðan þá hefur hún verið hér í fóstri og höfum við átt folöldin undan henni til skiptis við eigandann Guðrúnu Bjarnadóttur.
Við höfum tamið 4 af afkvæmunum hennar. Sá elsti er Forseti frá Bessastöðum. Hann fór í lok febrúar til Belgíu þar sem hann ætlar að standa sig vel í að kynna íslenska hesta. Hann er úrvals ganghestur, flugrúmur og fallegur.

Næstur er Oddviti frá Bessastöðum 6 vetra. Hann er mjög skemmtilegur ganghestur, hágengur og rúmur. Hann kann þó ekki alveg að "haga sér í fínum boðum" og því er hann á námskeiði hjá okkur sem heitir "Framkoma og hegðun". Liður í þeirri námskeiðsröð var að koma fram á Ís-landsmótinu á Svínavatni um daginn og gekk það vel. Reiðhallirnar eru erfiðari viðfangs.


Svo er á fimmta vetur hún Logadís frá Múla, sem Guðrún á. Þetta er gæðingshryssa. Helga Rún keppti á henni í tölti um daginn og vann sig í upp úr 8. sæti í B-úrslitum upp í A-úrslit. Þær fengu t.d. 6,5 fyrir alla eiginleika hjá báðum dómurum í B-úrslitunum.


Nú er verið að temja hana Sjöund frá Bessastöðum, sem er á fjórða vetur. Hún lofar mjög góðu. Hér er mynd af henni frá því í úttektinni eftir frumtamninguna í haust.


Svo eigum við eina skrítna á litinn undan Frostrós og Sjóði frá Bessastöðum. Hún er ekki síður spennandi en systkinin. Hún heitir Maddama frá Bessastöðum og er að verða tveggja vetra.

05.03.2012 11:36

Ýmis mót afstaðin

Fréttaritari síðunnar hefur ekki verið nógu duglegur að flytja fréttir af mótum vetrarins sem við höfum tekið þátt í. Nú skal ráðin bót þar á.

Í gær var fyrsta af þremur grunnskólamótum hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra. Helga Rún keppti þar í tölti á Logadís frá Múla, sem er bara 5 vetra. Algjör gæðingshryssa. Þær voru eftir forkeppni í 8.-9. sæti og unnu B úrslitin, þannig að þær kepptu líka í A-úrslitum. Þar var eðlilega farið að draga aðeins af hryssunni, en þær skiluðu góðri sýningu og enduðu í 5. sæti. Hún var líka með Hvirfil frá Bessastöðum í skeiði og sigraði það örugglega með glæsispretti í gegnum höllina. Úrslitin má sjá öll á heimasíðu Þyts.



Um helgina var líka Ís-landsmótið á Svínavatni. Úrslitin má sjá öll á heimasíðu Þyts. Jói fór þangað með 3 hross.

Í A-flokk: Heru frá Bessastöðum, 6 vetra. (mynd kemur seinna í dag) Hún stóð sig býsna vel.


og líka í A-flokk Skyggni frá Bessastöðum 7 vetra. Hann stóð sig nokkuð vel, nema að hann lagðist ekki nógu fljótt á skeiðið.


Í töltið fór hann með Oddvita frá Bessastöðum. Þeir stóðu sig alveg ágætlega.

Það eru búin tvö mót í Húnvetnsku liðakeppninni.
Þar er helst tíðinda að Jói og Vinsæl frá Halakoti sigruðu skeiðið.

25.02.2012 13:11

Kusur 2011



Aðalfundur Nautgriparæktarfélags V-Hún. var haldinn í vikunni. Þar fengum við verðlaun fyrir nythæsta búið í félaginu og nythæstu kúna árið 2011. Árskýrnar 29,7 mjólkuðu 6.794 kg mjólkur og vorum við í 2. sæti á svæði BHS, en Tjörn á Skaga var efst með 6.834 kg. Landsmeðaltalið er hins vegar 5.436 kg mjólkur.
Hún Líf okkar mjólkaði mest kúa hjá NFVH 9.116 kg mjólkur, strax á hæla hennar eru kýrnar okkar þær Þrá með 9.091 kg og Sólströnd 9.064.
Við fengum þessa fínu verðlaunakýr sem Fríða heldur á. Þær bjó listamaðurinn Helgi í Huppahlíð til.

Hér á heimasíðunni
okkar má sjá þróun afurðanna síðan við hófum búskap.

09.02.2012 10:59

Æfingar fyrir komandi tíma


Jói og Logadís eru þessa dagana að æfa sig fyrir sumarið, eins og fleiri hross hér á bæ.


Logadís stefnir að því að skeiða mun meira en hún gerði í kynbótadómi sl. vor. Svo ætlar hún að styrkja sig á öðrum vígstöðvum líka. Hún er gífurlega vel geng hryssa og með skemmtilega ásækna lund.


06.02.2012 11:15

Rekstur og stóð

Í myndaalbúmið eru komnar myndir af stóðinu og af innihrossunum í þjálfunartúr. Það er mikið fjör þegar hrossin hlaupa af stað í ca 10 km langan túr. Farið er framhjá þar sem stóðið er og þurfa þau iðulega að stoppa þar til að spjalla við vinina sem eru í útivistinni.

Svo vorum við að setja inn myndband af Elfu frá Kommu.

28.01.2012 09:05

Hross á húsi í vetur

Þá eru loks komnar inn á heimasíðuna upplýsingar um öll hrossin sem eru á járnum hjá okkur í vetur.
Hér á bak við eru upplýsingar um hryssurnar.
Hér á bak við eru upplýsingar um graðhestinn Sjóð og geldingana.
Hér er mynd af Sjóði og Alexander að kljást úti í snjónum. Hestakonan okkar og listamaðurinn Fríða Rós teiknaði myndina.

23.01.2012 22:30

Vetrarríki

Hér ríkir mikið vetrarríki þessa dagana. Jökullinn bara stækkar og stækkar. Einn kostur er þó við veturinn, en það er hvað allt er bjart og hreint og tært og gott reiðfæri á veginum. Hins vegar er afleitt akfæri ef hitastigið skreiðist upp í plúsinn.
Við settum inn myndir í albúmið af hryssunni Elfu frá Kommu, hún er til sölu. Mjög traust hross þar á ferðinni.

21.01.2012 21:17

Örfréttir


Á myndinni hér að ofan eru hrossin að koma heim úr rekstri. Það er frábært að geta þjálfað hrossin líka með því að láta þau hlaupa frjáls.Við erum með 21 hross á járnum og eru þau öll gífurlega skemmtileg. Það er smá bras með heimasíðuna, þannig að ekki er enn búið að setja inn upplýsingar um hrossin á járnum í vetur. Vonandi kemst það í lag í næstu viku.

Hér er myndband af hundinum okkur henni Tótu að sækja hrossin. Hún er ómissandi í þeirri vinnu. Ef hún er ekki með, tekur óratíma að sækja hrossin.

08.01.2012 16:24

Gleðilegt ár


Gleðilegt ár kæru lesendur og bestu þakkir fyrir innlitið á síðasta ári.


Þrettándagleði Hestamannafélagsins Þyts og Grunnskóla Húnaþings vestra var haldin með pompi og prakt á þrettándanum. Helga Rún var álfakóngur á Elfu frá Kommu og Fríða Rós var hirðmeyja á Tönju. Fanndís var álfadrottning og Birna Olivia var hirðmeyja. Svo var fullt af jólasveinum og auðvitað Grýla og Leppalúði á svæðinu ásamt fullt af fólki í skrúðgöngu frá skólanum upp í Þytsheima þar sem var teymt undir krökkum sungið og borðað fullt af góðu bakkelsi og drukkið kakó. Hin fínasta skemmtun þar á ferðinni. Fullt af myndum eru í myndaalbúmi Þyts


Það skín alltaf sólskinsbros á Fríðunni þegar hún er á hestbaki.

Tenglar

Upplýsingar um fréttaveituna:

Nafn:

Bessastaðir

Farsími:

892 7981 og 893 7981

Staðsetning:

Húnaþingi vestra

Heimasími:

451 2912

Önnur vefsíða:

www.bessastadir.is

Um:

Hrossaræktar- og kúabú, sem Guðný Helga Björnsdóttir og Jóhann B. Magnússon reka. Um 30 hross, 30 kýr og 3 börn. Sjá nánar á www.bessastadir.is.
Flettingar í dag: 41
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 112
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 58090
Samtals gestir: 22342
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:21:40